30. nóvember 2008 klukkan 15:55
Elsku Þórunn og Krissi...
Innilega til hamingju með litla fullkomna drenginn ykkar !

Get ekki beðið eftir að sjá myndir,
hvað þá að knúsa og dáðst af litla gullmolanum...
Njótið þess að horfa á hann og verða ástfangin, þetta er besta tilfinning í heimi....
Hörkugella Hörkugellsdóttir
24. ágúst 2008 klukkan 16:27
Þórdís og Heimir eignuðust litla dásamlega prinsessu kl 01.08 í nótt.

Hún var 11,5 merkur og 46,5 cm með svart mikið hár.. :)
Knús og kossar til ykkar..
Hafið það gott næstu daga og njótið þess að vera til litla krúttlega fjölskylda.
kv. Þórunn Þórarins.
Ţórunn Ţórarinsdóttir
19. júlí 2008 klukkan 09:32
Jæja... Hver bíður sig fram að halda næsta hitting ?? Bara að hittast og spjalla og allar gætu tekið e-ð að með sér til að setja á borðið þannig að sá sem heldur þarf ekkert að hafa fyrir..??

Well.... hvað segiði ?
Hafið það gott ljúfur...
Hörkugella Hörkugellsdóttir
29. júní 2008 klukkan 11:51
Víííí það verður svo gaman saman hjá Þóru í Öldutúninu á...
ÞRIÐJUDAGSKVELDIÐ !!
Ást og friður að eilífu

Hörkugella Hörkugellsdóttir
30. maí 2008 klukkan 18:02
Lítill drengur er mættur í heiminn.
Elsku Eva Rós og Atli til hamingju með frumburðinn ykkar.
Njótið næstu daga litla fjölskylda.
Knús og kossar.
Hörkugella Hörkugellsdóttir
27. maí 2008 klukkan 19:46
Dagurinn í dag er ansi merkilegur, Didda er orðin 24 ára kona.
Til hamingju með afmælið elsku Didda okkar.
24 ára falleg snót.
Knús og kossar frá öllum Hörkugellunum.
Allavega færðu risastóran knús frá mér.
kv. Þórunn
Hörkugella Hörkugellsdóttir
23. maí 2008 klukkan 10:50
Hahaha, við erum ekkert smá slappar, uuu, reyndar komst ég ekki í gær, Birkir Smári átti afmæli í gær og ég var að undirbúa veislur um helgina en Þórdís mætti EIN!! Ég myndi segja mig úr hópnum ef ég væri hún :/
En þá að máli málanna!! Minn ástkæri sonur varð sem sagt 2ja ára í gær ótrúlegt en satt og það verður fjölskylduafmæli hjá okkur á laugardaginn. Svo var ég að hugsa mér að hafa vinaboð á sunnudaginn, bara afslappað og kósí. Það væri rosa gaman að sjá ykkur allar, en ég móðgast ekkert ef þið a) eruð uppteknar, b) eruð þunnar eftir tryllt eurovisionpartý og nennið ekki eða c) ykkur finnst leiðinlegt í barnaafmælum.
Endilega látið mig vita hvort þið komist í komment eða sms og endilega ef þið getið komið með krílin. Eva Rós, ekki vera búin að eiga og leyfðu okkur að sjá bumbuna ;)
Samantekt
Afmælisboð á sunnudaginn kl 15!! Þið vitið hvar við eigum heima.
Be there or be square!!
OG til hamingju með próflokin allar!! Ég LOKSINS kláraði í fyrradag, asnalegt að klára löngu eftir að háskólinn er búinn að hafa allt próflokadjamm og allar deildir búnar nema mín!
Jæja þessi litli kútur er voða spenntur að fá ykkur í heimsókn

Sjáumst vonandi á sunnudaginn!!
kv Gígja og Birkir Smári
Gígja Erlingsdóttir
22. maí 2008 klukkan 15:05
HG kaffihúsahittingur í dag fimmtudag 22.maí...
Jibbííííí....
Mæting milli 16.30-17 á Súfistann í Hafnarfirði...
Nauðsynlegt að hafa með sér:
Eva - ekki vera búin að fæða, hafa barnið í maganum með sér...
Nóg af slúðri....
Typpasögum...
Hlátur....
Frið og ást.. hahaha
Sjáumst á eftir,
Plandís
Hörkugella Hörkugellsdóttir
06. maí 2008 klukkan 11:28
Hvenær eru konur búnar í prófum og ritgerðarskilum ??
Getum við ekki tekið kaffihúsahitting eða fengið okkur eitthvað að éta saman eða jafnvel fá okkur eitthvað að borða eftir öll þessi herlegheit..?
Vinsamlegast skiljið eftir komment hér fyrir neðan hvenær þið komist.
kv. Skemmtanastjóri HG
Hörkugella Hörkugellsdóttir
21. apríl 2008 klukkan 11:44
Ungfrú Þórdís Friðbergsdóttir á afmæli í dag.
Hörkugellur nær og fjær vilja óska henni innilega til hamingju með daginn.
24 ára ung snót.
Fullt af afmælisknúsum og kossum.
Hafðu það ljúft og huggulegt í dag ..
Ţórunn Ţórarinsdóttir